Jafnréttis- og jafnlaunastefna

Tilgangur og markmið jafnréttis- og jafnlaunastefnu Dalsnes samstæðunnar er að stuðla að jafnrétti kynjanna í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, þar með talið að greidd séu sambærileg laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, þannig að stefnt sé að enginn óútskýrður kynbundinn launamunur sé til staðar í samstæðunni.

  • Dalsnes leggur áherslu á jafnrétti kynjanna og að nýta til jafns styrkleika kvenna og karla þannig að hæfileikar og færni alls mannauðs félagsins njóti sín sem best. Stefna fyrirtækja innan Dalsnes samstæðunnar er að vera vinnustaður þar sem hver einstaklingur er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu.
  • Dalsnes greiðir körlum og konum sömu laun fyrir jafnverðmæt störf og þau njóta sömu kjara og réttinda að öðru leyti.
  • Dalsnes samstæðan fylgir jafnréttisáætlun þar sem lögð er áhersla á að allir starfsmenn njóti sín án tillits til kynferðis, þjóðernis, trúarbragða, skoðana, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs eða annarra sérkenna.
  • Gagnkvæm virðing og kurteisi skulu ráða ríkjum. Einelti, kynbundin og kynferðisleg áreitni er ekki liðin. Fyrirtæki innan Dalsnes samstæðunnar eru með viðbragðsteymi sem tekur á slíkum málum.

Útgefið ágúst 2022.